Innskráningar kubbur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Uppgjör ??

30. desember 2007 klukkan 15:56
Er það kannski málið að reyna endurlífga þessa síðu e-ð ?

Koma kannski sterkur inn á nýju ári ?

hmm ha ?
Þorvaldur Sveinsson
2 athugasemdir

Meðan minn gítar blíðlega vælir ....

24. febrúar 2007 klukkan 20:08
Eða While my guitar gently weeps eins og það heitir á enskunni ... samið af George Harrison ... endilega leiðréttið mig ef það er ekki rétt.

En allavega þetta lag á þrennu dagsins ...

Jake Shimabukuro að taka lagið á Ukulele ....aðeins betri en ég.

Jeff Healey gítarsnillingur með meiru sem var í myndinni Roadhouse sem er btw tímalaus snilld ... að taka lagið.



Og endum þetta á ... Yellow Matter Custard ?? já já því ekki það



Þorvaldur Sveinsson
4 athugasemdir

Bloggleti dauðans ...

13. febrúar 2007 klukkan 23:16
Heví latur e-ð þessa dagana að blogga ... nema á Roskilde.bloggar.is
endilega tjekkið á henni.

Annars er karlinn bara hress ... missi reyndar prófið í 8 mánuði.

Góðir tímar framundan .... búinn að kaupa miðann á skelduna.

Loka þessu með þessu æðislega myndbandi ...
Þorvaldur Sveinsson
Engin athugasemd

2006/2007

31. desember 2006 klukkan 20:03
 
Roskilde auðvitað það sem stendur uppúr á árinu.


Tool - 10.000 days og Zero 7 - The Garden var það sem gerði það best músíklega séð.

Fínt ár ..... hefði alveg viljað láta það enda á betri veg en það er bara svona.

Slúttum þessu bara hér og segjum ..... Gleðileg nýtt ár og takk fyrir það gamla.


Þorvaldur Sveinsson
3 athugasemdir

Gleðileg Jól ....

25. desember 2006 klukkan 00:36

og farsælt komandi ár .... sjáumst kát á nýju bloggári.


Þorvaldur Sveinsson
2 athugasemdir

Fyrsta færslan í des....

16. desember 2006 klukkan 03:50
Búinn að vera voðalega blogglatur undanfarið en já ....

Kominn í 11 daga frí.

Er að fara selja íbúðina.

Búinn að vera edrú í 6 vikur.

Jólahlaðborð á broadway á morgun.

Ekki ennþá búinn að fá One armböndin mín en bíð spenntur.

Nenni eiginlega ekkert þessu jóladæmi.

Á miða á Incubus í stúku.

Á maður að detta íða á áramótunum ?


Lag dagsins .... The Beatles - While my guitar gently weeps
Þorvaldur Sveinsson
6 athugasemdir

Sjæse ...

01. desember 2006 klukkan 05:19
Svei mér þá ef ég er ekki þarna hjá bláa tjaldinu ..





Miðasalan hefst 1.des !!
Þorvaldur Sveinsson
1 athugasemd

Tool

24. nóvember 2006 klukkan 06:37

Fékk rosalegt Roskilde flashback um daginn .... í kjölfarið er ég eiginlega bara búinn að hlusta á Tool.


Lag Dagsins Tool - Stinkfist



Þorvaldur Sveinsson
3 athugasemdir

Hehehehe !

23. nóvember 2006 klukkan 01:38
http://www.youtube.com/watch?v=-3Ja97Otr00


Þessi gaur er bara bestur ...
Þorvaldur Sveinsson
2 athugasemdir

Sykurmolar og James Bond

20. nóvember 2006 klukkan 02:02

17. Nóvember verður lengi í minnum hafður skal ég segja ykkur.

 Því þá var farið á Tónleika með Sykurmolunum sem haldnir voru í tilefni þess að 20 ár voru liðin frá að Lagið Birthday eða "Ammæli" var gefið út á smáskífu.

Þarna var allt bandið mætt höfðu engu gleymt og tóku þau bara öll sín bestu lög .. m.a Deus, Birthday, Planet, Motorcrash, Hit, Luftguitar, Regína og Traitor.


Múm og Rass hituðu upp og verð ég að segja að Múm kom þónokkuð á óvart.


Í gær .. það er Laugardag þá var ákveðið að skella sér í bíó á Casino Royal nýjustu myndina um njósnarann James Bond.

Áður en lagt var að stað til Rvk var ákveðið að við skyldum fara á bílnum mínum fyrst Gaui var ekki kominn á nagladekkin góðu og var það mjög góð hugmynd ( þó svo að sumir sögðu að það myndi ekkert snjóa ) Þannig við fórum og sóttum Ingibjörgu og svo Önnu K og skunduðum svo í Laugarásbíó.

En já myndin var bara geðveik .... svei mér þá ef þetta er ekki langbesta Bond myndin af þeim öllum og Daniel Craig fer á kostum í þessari mynd enda kominn tími á góða Bond mynd eftir þessar hörmungar með Pierce Brosnan.

Þegar við komum úr bíóinu þá var kominn þessi fíni snjóbylur og heimferðin var ekkert grín.

Þegar komið var út á Kjalarnesið þá sáum við varla stikurnar og hvað þá línurnar á veginum og þurftum við að stoppa alloft því það sást bara ekkert og munaði þar að auki litlu að við hefðum endað útaf veginum og það var mikill léttir að komast í göngin eftir þessa hörmung.


Lag Dagsins Sugarcubes - Planet




Þorvaldur Sveinsson
2 athugasemdir